![]() | ![]() | ![]() | ![]() | ![]() | ![]() | ||||
Um
ARLIS/Norden Fréttir Íslensk
listbókasöfn Aðilar
í ARLIS Umsókn
um aðild Póstlisti Íslenskir
listvefir | ARLIS/Norden
- samtök listbókasafna í Danmörku, Finnlandi, Íslandi,
Noregi og Svíþjóð. ARLIS/Norden
- Art Libraries Society Norden - eru samtök norrænna listbóksafna.
Samtökin voru stofnuð 1986. ARLIS/Norden er aðili að Section
of Art Libraries, sem er deild innan IFLA (International Federation of Library
Associations and Institutions ) alþjóðasambands bókasafna,
ásamt fjölda skyldra samtaka víða um heim. Tilgangur
ARLIS/Norden er að efla fagkunnáttu í norrænum listbókasöfnum.
Í samtökunum eru bókasöfn á sviði myndlistar,
listiðnaðar, hönnunar, byggingarlistar, ljósmyndunar og skyldra
greina. Á vettvangi ARLIS/Norden gefst félögunum tækifæri
til þess að sinna sameiginlegum málefnum sínum. Samtökin
miðla upplysingum og mynda tengsl milli félaganna. Þau sinna
hagsmunum þeirra með endurmenntun, námskeiðahaldi, rannsóknum,
og útgáfustarfsemi á faglegum grunni. Norðurlöndin
fimm sjá til skiptis um ársfund samtakanna, sem stendur venjulega
í 2-3 daga og er ákveðið efni tekið til umfjöllunar
hverju sinni. Á ársfundunum gefst félögunum gott tækifæri
til þess að ræða saman, skiptast á skoðunum, auk
þess sem farið er í kynningarferðir. Auk ársfundanna
starfar hver landshópur fyrir sig og hittist regulega. ARLIS/Norden
samtökin taka virkan þátt í alþjóðlegri
samvinnu listbóksafna, bæði alþjóðlegum ráðstefnum
IFLA og einstökum ráðstefnum á vegum Section of Art Libraries
og ARLIS hópa hvers lands fyrir sig. Fréttabréf
samtakanna, ARLIS/Norden Info kemur út í rafrænu formi á
slóðinni: http://arlisnorden.wordpress.com/ | ||||||||