![]() | ![]() | ![]() | ![]() | ![]() | ![]() | ||||
Um
ARLIS/Norden Fréttir Íslensk
listbókasöfn Aðilar
í ARLIS Umsókn
um aðild Póstlisti Íslenskir
listvefir
| FRÉTTIR
/ NYHEDER Ágúst 2010 Bogasalurinn 1950-1998 Í
sumar hefur Bóka- og heimildasafn Þjóðminjasafns Íslands
notið krafta Kristínar Arnþórsdóttur, upplýsingafræðings
og meistaranema í hagnýtri menningarmiðlun, en hún hefur
unnið við það að skrásetja allar sýningar
sem verið hafa í Bogasal Þjóðminjasafnsins
frá upphafi til ársins 1998. Einnig hefur hún tekið með
ýmsar sérsýningar sem verið hafa á öðrum
stöðum innan Þjóðminjasafnsins á þessu
tímabili.Með flestum sýningunum fylgir lýsandi umsögn ásamt tenglum í í skrárnar, sem margar hverjar er búið að skanna inn, og einnig eru tenglar sem flytja lesandann beint á allar blaðaumsagnir um viðkomandi sýningu. Ljóst er að þessi vinna er ómetanleg fyrir alla þá sem vilja rannsaka listasögu þjóðarinnar og sögu Þjóðminjasafnsins og mun fjölbreytileiki sýninganna koma mörgum á óvart. Kristínu er þakkað fyrir hreint einstakt verk sem unnið var af mikilli fagmennsku og þekkingu. /GF Júní/júlí 2010 Ráðstefnan í Osló Lokið
er stórskemmtilegri en nokkuð viðburðaríkri ráðstefnu
og ársfundi í Oslo sem haldin var í byrjun júní.
Þátttakendur frá Íslandi voru þær Lísa
Valdimarsdóttir og Sigrún Sveinsdóttir frá
Listaháskóla Íslands, Elín Guðjónsdóttir
frá Listasafni Íslands og Gróa Finnsdóttir
frá Þjóðminjasafni Íslands. Segjast verður
eins og er að oft hefur ráðstefnuhaldið verið metnaðarfyllra
og með fleiri alþjóðlegri fyrirlesurum, og var ljóst
að sparnaður setti nokkurt mark á ráðstefnuhaldið
allt. Það var svolítið eins og hryggjarstykkið - listbókasöfn
og rannsóknir - týndist svolítið í mörgum
og smáum fyrirlestrum sem skiluðu undirritaðri satt að segja
litlu. Verð ég þó að undanskilja þar erindi
Åse
Markussen:
"Bibliotekar som forsker, eller bibliotekar for forskere?" sem var bæði
athyglisvert og prýðilega flutt. Engu
að síður voru móttökurnar með ágætum
og var sérstaklega gaman að heimsækja hið nýja og
glæsilega Óperuhús
þeirra Oslóbúa sem hefur m.a. að geyma verk eftir Ólaf
Elíasson. Sömuleiðis er alltaf ánægjulegt að
skoða Norsk folkemuseum
- þrátt fyrir úrhellisrigningu! - þar sem hinn hefðbundni
hátíðakvöldverður var haldinn
með pompi og pragt. Framtíð
þessarar vefsíðu ræðst svo vonandi á næstu
mánuðum, en stofnaður var vefsíðuhópur í
Osló (þar sem þó vantaði fulltrúa tveggja
landa, þar af var hinn danski vefstjóri annar þeirra). Nú
er beðið eftir því að vefstjórinn setji vefinn
upp í nýju útliti en þangað til verður fólk
að láta sér þetta gamla útlit nægja... Ferðastyrkur á ráðstefnuna í Oslo ARLIS/Norden mun styrkja okkur Íslendingana sérstaklega vegna ráðstefnunnar í Osló. Reikningurinn sem verður sendur til þátttakenda núna í maí mun verða lægri en til annarra þátttakenda vegna þess að okkar styrkur mun fara til lækkunar ráðstefnugjaldsins. Núna eru 10.000 skr. til ráðstöfunar í ferðasjóði samtakanna og fær hver þátttakandi að hámarki 2.000 skr. greiddar. Upphæðin sem hver og einn fær fer því eftir fjölda þátttakenda, þannig að ef það verða færri en fimm þátttakendur frá Íslandi þurfa þeir í raun einungis að greiða fyrir flug og hótel, og e.t.v. 200 skr. að auki (ráðstefna + kvöldverður + kynningarferð). FUNDIR 2010: 25. janúar: Listaháskóli Íslands, bókasafn 8. mars: fræðslufundur á Árnastofnun - formaður segir frá stjórnarfundi í Stokkhólmi. 3. maí: heimsókn á Þjóðminjasafn og kynning á nýjum Sarpi 10. - 12. júní: ARLIS/Norden ráðstefna og ársfundur í Osló í Noregi 6. september: fræðslufundur í Listaháskóla Íslands - efni óákveðið 1. nóvember: heimsókn - tillaga um bókasafn Norræna hússins Desember: Jólafundur/jólamatur - staðsetning óákv. ELDRI
FRÉTTIR ARLIS
ráðstefna 2008 10. 09. 2007 Undirbúningur
fyrir ARLIS ársfund og ráðstefnu sem haldin verður 12. -
14. júní 2008 stendur nú yfir. Formaður undirbúningshóps
er Elín Guðjónsdóttir, deildarstjóri bókasafns
Listasafns Íslands. | ||||||||